45 mín
Ofnbakaður hakkréttur með kartöflum og osti
Erum við ekki alltaf að leita að ódýrum hversdagsrétti sem allir í fjölskyldunni elska? Þessi sló í gegn.
Hráefni
4-5 bökunarkartöflur
1 laukur
5-6 gulrætur
6 sneiðar beikon
500-600 g nautahakk (eða blanda af nauti og lambi)
1 msk kjötkraftur
1 tsk þurrkuð steinselja
1 tsk timían
1 tsk hvítlauksduft
Salt og pipar
1 msk maizenamjöl (hrært út í smá vatni)
3-4 dl vatn
1 dl rjómi
Leiðbeiningar
Klassískur hversdagsréttur sem er bæði ódýr og fljótlegur — passar vel með rauðkáli og baunum, eða bara salati og snittubrauði.
1
Afhýðið kartöflurnar og skerið í sneiðar. Sjóðið í söltuðu vatni í 10 mín.
2
Saxið lauk, gulrætur og beikon smátt og steikið á pönnu þar til laukurinn er glær.
3
Takið grænmetið af pönnunni, setjið hakkið á og brúnið. Bætið kryddinu og grænmetinu aftur út í.
4
Hellið kjötkrafti og vatni yfir, sjóðið í nokkrar mín. Þykkið með maizenablöndunni og hrærið rjómanum saman við.
5
Sigtið kartöflurnar, saltið og piprið, setjið í eldfast mót. Hellið hakkblöndunni yfir og toppið með osti.
6
Bakið við undir- og yfirhita í 20 mín.
7
Berið fram með salati og snittubrauði.