30 mín
Matarmikil tómatsúpa með pasta
Ódýr og einföld tómatsúpa með pasta sem er tilbúin á hálftíma — fer vel með budduna og er fullkomin þegar mikið er að gera.
Hráefni
700 ml vatn
1 teningur grænmetiskraftur
1 dós kókosmjólk
2 dósir niðursoðnir hakkaðir tómatar
4 hvítlauksrif
1/2 msk olía
Salt og pipar
3 dl pastaskrúfur
Leiðbeiningar
Ein ódýrasta og einfaldasta súpa sem til er — fer vel með budduna og geymist líka rosalega vel.
1
Maukið tómatana með töfrasprota eða í blandara.
2
Steikið hvítlaukinn upp úr olíu í potti þar til hann fær örlítinn lit (passið að hann brenni ekki).
3
Bætið tómötum, vatni, grænmetiskrafti og kókosmjólk út í.
4
Saltið og piprið eftir smekk, látið malla í 12 mín.
5
Setjið pastað út í og eldið í 8-10 mín til viðbótar.
6
Berið fram með ristuðu brauði, sýrðum rjóma og rifnum osti.