1 klst
Kjúklingalasagna með heilum grilluðum kjúlling
Frábær leið til að nýta heilan grillaðan kjúkling frá Prís — sló í gegn í matarboði og bæði börn og fullorðnir vilja alltaf meira.
Hráefni
1 heill grillaður kjúklingur frá Prís, kjötið tekið af beini (eða 4 kjúklingabringur)
1 græn paprika
1 hvítlauksrif
1 laukur
3 gulrætur
1 box sveppir
1/2 piparostur
1 dós niðursoðnir tómatar
1 flaska tómatmauk (passata)
1/2 krukka grænt pestó
1 msk oregano
1 msk ítölsk kryddblanda
1 msk grænmetiskraftur
2 tsk kjúklingakraftur
Salt og pipar
Leiðbeiningar
Sniðugasta leiðin til að nýta heilan grillaðan kjúkling frá Prís — sneiðið hann bara niður og sósan gerir restina. Passar líka vel að skipta í hluta og frysta fyrir seinna.
1
Saxið papriku, hvítlauk, lauk, gulrætur, sveppi og piparost smátt og steikið í stórum potti.
2
Bætið tómötum, tómatmauki, pestói og kryddum út í, látið malla í 5 mín.
3
Bætið kjúklingnum út í og látið malla aðeins áfram.
4
Hitið ofninn í 190°C.
5
Raðið í eldfast mót: fyrst kássa, svo lasagnablöð, koll af kolli.
6
Látið efsta lagið vera kássu, stráið ostinum yfir.
7
Bakið í 40 mín.
8
Berið fram með góðu salati og hvítlauksbrauði.