30 mín

Matarmikil tómatsúpa með pasta

Ódýr og einföld tómatsúpa með pasta sem er tilbúin á hálftíma — fer vel með budduna og er fullkomin þegar mikið er að gera.

Hráefni

700 ml vatn

1 teningur grænmetiskraftur

1 dós kókosmjólk

2 dósir niðursoðnir hakkaðir tómatar

4 hvítlauksrif

1/2 msk olía

Salt og pipar

3 dl pastaskrúfur

Leiðbeiningar

Ein ódýrasta og einfaldasta súpa sem til er — fer vel með budduna og geymist líka rosalega vel.

1

Maukið tómatana með töfrasprota eða í blandara.

2

Steikið hvítlaukinn upp úr olíu í potti þar til hann fær örlítinn lit (passið að hann brenni ekki).

3

Bætið tómötum, vatni, grænmetiskrafti og kókosmjólk út í.

4

Saltið og piprið eftir smekk, látið malla í 12 mín.

5

Setjið pastað út í og eldið í 8-10 mín til viðbótar.

6

Berið fram með ristuðu brauði, sýrðum rjóma og rifnum osti.

Opið alla daga 10-20

Smáratorgi 3 | 2. hæð | 201 Kópavogi

Skráðu þig sem pennavin!

Prís í eigu Samkaupa ehf.

kt. 571298-3769

Hagasmára 1, 201 Kópavogi

Opið alla daga 10-20

Smáratorgi 3,

2. hæð, 201 Kópavogi

Skráðu þig sem pennavin!

Prís í eigu Samkaupa ehf.

kt. 571298-3769

Hagasmára 1, 201 Kópavogi