
10 mín
Djúsí grillaður kjúlli í vefju
Afhverju að flækja hlutina? Gríptu tilbúinn grillaðan kjúkling í Prís og skelltu í þessar trylltu vefjur.
Hráefni
1 heill grillaður kjúklingur frá Prís
1 pakki tortillavefjur (t.d. frá Schysst käk)
1 ferna af baunum að eigin vali
Salat að eigin vali
Schysst käk kebab sósa
Salsa sósa
Tómatar, avocado og gúrka, skorið niður í bita
1 poki Garant tortilla chips
Leiðbeiningar
Rífðu kjötið af grillaða kjúklingnum (geymdu beinin ef þú vilt nýta það í soð seinna, 100% nýting!)
1
Hitaðu vefjurnar aðeins á pönnu eða í örbylgju svo þær verði mjúkar.
2
Smyrðu vel af sósu á vefju.
3
Raðaðu salati, grænmeti, baunum og kjúklingi í miðjuna.
4
Rúllaðu upp og njóttu!

