
20 mín
BBQ kjúklingapizza á núll einni
Áttu afgang af grilluðum kjúlling og pizzadeig frá Prís? Þá ertu tveimur skrefum frá bestu pizzu ever.
Hráefni
1 pakki Pizzadeig frá Prís
Afgangur af grilluðum kjúlling, tættur niður
BBQ sósa
Rifinn ostur (mozzarella eða pizzaostur)
Rauðlaukur, þunnt skorinn
Ferskt kóríander eða steinselja (má sleppa)
Leiðbeiningar
Hitaðu ofninn.
1
Fletjið deigið út á ofnplötu.
2
Smyrjið BBQ sósu yfir í stað hefðbundinnar tómatsósu.
3
Dreifið kjúklingnum, ostinum og rauðlauknum yfir.
4
Bakið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningunni þar til osturinn er gullinn og deigið stökkt.
5
Toppið með fersku kóríander og njótið!