top of page

Hér eru skilmálar og annað skemmtilegt lesefni.

Æsispennandi vefkökustefna Prís

Hvað eru vefkökur?

Vefkökur eru litlar textaskrár sem vefsvæði senda í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir vefsvæði okkar.

Með notkun á vefkökum getum við þekkt og vitað hvaða tæki þú notar þegar þú heimsækir vefsvæði okkar. Vefkökur geta geymt upplýsingar eins og texta, númer, dagsetningar og fleira. 

Vefkökur okkar geyma ekki persónugreinanleg gögn né deilum við upplýsingum sem við söfnum með þriðja aðila.

Notendur vefsvæðanna hafa alltaf möguleika á að loka fyrir notkun á vefkökum eða að veita leyfi í hvert skipti sem vefsvæði okkar er notað. Slíkar stillingar gætu haft áhrif á virkni vefsvæðisins og þannig takmarkað notkun þess að hluta eða öllu leiti.

 

Hvernig notum við vefkökur?

Almennt eru vefkökur notaðar til að vefsvæðið virki eða þau starfi betur og sé skilvirkari. Með því að nota vefkökur er okkur kleift að gera alla notkun þína á vefsvæðinu þægilegri og betri. Við notum eingöngu vefkökur sem við teljum gagnlegar og nauðsynlegar.

Vefkökur okkar ná yfir tvo flokka:

Tæknilegar vefkökur:

Vefkökur þessar eru nauðsynlegar vegna reksturs á vefsvæðum svo þau og eiginleikar þess virki.  Tæknilegar vefkökur eru settar sjálfkrafa inn á tölvuna þína þegar þú ferð inn á vefsvæðið, nema þú hafir valið að vafrinn þinn hafni vefkökum.

Með skiptingu á milli http og https tryggja þessar kökur m.a. öryggi notenda.  Þær vista einnig ákvörðun notenda um notkun á kökum á vefsvæði okkar. 

Frammistöðu vefkökur:

Þessar vefkökur eru ekki nauðsynlegar við notkun vefsvæða okkar en þær gegna mikilvægu hlutverki fyrir notkun og virkni þeirra. Með þeim getum við safnað upplýsingum um frammistöðu vefsvæða og auðveldar okkur þannig að aðlaga það að þörfum notenda, s.s. með því að senda þér sértæk tilboð. Þær safna einnig upplýsingum og auðvelda þér að fylla út t.d. pantanir.

Þinn réttur

Þegar þú kemur í fyrsta skiptið inn á vefsvæði okkar ert þú spurð(ur) hvort þú samþykkir notkun á vefkökum. Þú getur hvenær sem er lokað fyrir vefkökur með því að hreinsa þær út  eða eyða þeim úr vafranum þínum. Þú getur líka breytt stillingum fyrir vefkökur í vafranum þannig að hann taki ekki á móti þeim.

Yndislestur um skilareglur Prís

Við hjá Prís leggjum mikið uppúr því að selja gæðavörur og reynum eftir fremsta megni að tryggja vörugæði og ánægju Prísara.


Almennt er ekki hægt að skila matvöru til Prís nema ef varan sé gölluð eða að hún hafi verið seld útrunnin úr verslun Prís.


Til að skila vöru þarf að sýna kvittun eða staðfestingu fyrir kaupum á tiltekinni vöru, ef enginn vafi er á að varan hafi verið keypt í Prís eins og t.d vara sem er einungis seld í Prís er ekki nauðsynlegt að framvísa kvittun.

Sérvörur eins og heimilsvörur, raftæki o.þ.h sem eru keyptar hjá Prís eru með 14 daga skilafrest ef varan er ennþá í upprunalegum umbúðum og/eða engin innsigli hafa verið rofin.

bottom of page