
10 mín
Djúsí grillaður kjúlli í vefju
Afhverju að flækja hlutina? Gríptu tilbúinn grillaðan kjúkling í Prís og skelltu í þessar trylltu vefjur.
Hráefni
Hráefni
1 heill grillaður kjúklingur frá Prís
1 pakki tortillavefjur
Fersk salatblanda
Prís hvítlaukssósa eða mæjónes
Tómatar og gúrka, smátt skorið
Aðferð
Rífðu kjötið af grillaða kjúklingnum (geymdu beinin ef þú vilt sjóða soð seinna, 100% nýting!).
Hitaðu vefjurnar aðeins á pönnu eða í örbylgju svo þær verði mjúkar.
Smyrðu vel af sósu á hverja vefju.
Raðaðu salati, grænmeti og kjúklingi í miðjuna.
Rúllaðu upp og fáðu þér að borða. Enginn óþarfa tími í eldhúsinu!
Leiðbeiningar

